Skilmálar verslunar

Skilafrestur og endurgreiðsla. 

Viðskiptavinir hafa 14 daga frá því að varan er keypt til að skila vörunni.  Vörunni þarf að skila í upprunalegum umbúðum og kvittun þarf að fylgja.  Ef varan er innsigluð má innsiglið ekki vera rofið.  Ef framangreind skilyrði eru uppfyllt og varan er móttekin er endurgreiðsla framkvæmd.  Flutningsgjöld eru ekki endurgreidd.  Vara fæst ekki skilað né endurgreidd ef um útsöluvöru er að ræða. 

Hægt er að velja um greiðsluleið í gegnum Borgun þar sem tekið er við bæði kredit- og debitkortum.  Einnig er hægt að velja um að greiða með millifærslu.  Athugið ef að valin er millifærsla þarf greiðsla að berast innan við sólahring frá pöntun annars áskiljum við okkur rétt að fella pöntunina niður.

Bankaupplýsingar:  528-26-650718  kt. 650718-1270

Ef það eru nánari spurningar vinsamlegast sendið á oskir@oskir.is

Trúnaður. 

Verslunin Óskir heitir öllum kaupendum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupendur gefa upp í tengslum við viðskiptin.  Engar upplýsingar verða afhentar þriðja aðila.   Upplýsingar úr kerfi verslunarinnar  kunna að nota persónuupplýsingar, s.s. búsetu, aldur eða viðskiptasögu, til að útbúa viðeigandi skilaboð til meðlima síðunnar.  Viðskiptavinir vefverslunarinnar geta ætíð afskráð sig og þannig neitað fyrirtækinu notkun á slíkum upplýsingum.

Almennt

Óskir verslun áskilur sér rétt að hætta við pantanir vegna rangra upplýsinga um vöru, einnig áskilur verslunin að breyta verðum og eða hætta að bjóða vörutegundir án fyrirvara. 

Verð

Öll verð sem birtast á heimasíðunni geta breyst án fyrirvara.

Skattar og gjöld

Öll verð sem gefin eru upp eru með VSK og allir reikningar eru gefnir út með VSK.

Afhending/Heimsending/Flutningur

Allar pantanir eru afgreiddar á 2-4 virkum dögum.  Hægt er að velja um að sækja pantanir í vefverslun (eftir samkomulagi), fá sent á næsta pósthús eða fá sent heim að dyrum.  Valkostir eru valdir samhliða greiðslu.  Þjónustuaðili er Pósturinn (www.posturinn.is)  og gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Póstsins um afhendingu vörunnar.   Athugið að skoða þetta vel ef óskað er eftir að fá sent heim að dyrum, hvort að Pósturinn veiti þá þjónustu í ykkar bæjarfélagi. 

Óskir eru eingöngu netverslun og eru því ekki með neina uppsetta verslun. Við erum staðsett í Ártúnsholti í Árbæ og erum nokkuð sveigjanleg ef óskað er eftir að sækja pantanir í netverslun.   Vinsamlegast sendið okkur póst á netfangið oskir@oskir.is og látið okkur vita hvaða tími hentar ykkur eða hringið í okkur í síma: 620-1270. 

Ákvæði og skilmála þessa ber að túlka í samræmi við íslensk lög.  Komi  upp ágreiningur eða telji einhver að hann eigi kröfu á hendur netverslunni Óskir ehf á grundvelli þessara ákvæða og skilmála, verður slíkum ágreiningi eða kröfu vísað til meðferðar hjá íslenskum dómstólum.  

  

Óskir verslun ehf.

Ártúnsholti - Árbæ

110 Reykjavík

Heimilisfang og varnarþing ÓSKA er í Reykjavík.

 

Sími: 620-1270

Kt: 650718-1270

VSK númer: 132168